Hjálp til að halda okkur frá blóði
Allir söfnuðir fá send kort með yfirlýsingu um læknismeðferð og nafnskírteini fyrir börn. Skírðir boðberar geta fengið nýtt kort hjá ritara safnaðarins í vikunni sem hefst 29. desember, og þeir sem eiga óskírð börn yngri en 16 ára geta fengið nafnskírteini fyrir hvert þeirra.
Boðberar eru hvattir til að útfylla kortin heima en EKKI undirrita. Undirritun, vottun og dagsetning allra korta getur farið fram að loknu næsta safnaðarbóknámi. Áður en skrifað er undir skal ganga úr skugga um að kortið sé rétt útfyllt. Vitundarvottarnir eiga að sjá korthafann undirrita kortið. Bóknámsumsjónarmenn ættu að sjá til þess að allir sem tilheyra bóknámshópnum fái aðstoð við að útfylla kortin, ef þess er óskað.
Óskírðir boðberar geta útbúið kort handa sér og börnum sínum og stuðst við orðalag yfirlýsingarinnar og nafnskírteinisins. Boðberar geta fengið kort á ensku hjá ritara safnaðarins ef þeir hyggja á ferðalög til útlanda.