Bjóðum bókina Lærum af kennaranum mikla
◼ „Heldurðu að heimurinn væri betri ef fólk færi eftir því sem kemur hér fram? [Lestu Matteus 7:12a og gefðu síðan kost á svari.] Í þessari bók er að finna margt af því sem besti kennari allra tíma kenndi.“ Beindu athyglinni að myndum og myndatextum í 17. kafla.
◼ „Flestir foreldrar reyna að kenna börnunum góð gildi. Telur þú það vera mikilvægt? [Gefðu kost á svari og lestu síðan Orðskviðina 22:6.] Taktu eftir að foreldrar eru hvattir til að kenna börnunum frá unga aldri. Þessi bók er samin til að auðvelda þeim það.“ Beindu athyglinni að myndum og myndatextum í 15., 18. eða 32. kafla.
◼ „Foreldrar eru oft hissa á spurningum barna sinna. Ertu ekki sammála því að það er oft erfitt að svara spurningum þeirra? [Gefðu kost á svari og lestu síðan 2. Tímóteusarbréf 3:14, 15.] Mamma og amma Tímóteusar kenndu honum frá blautu barnsbeini úr Ritningunni. Þessi bók getur hjálpað foreldrum núna að gera það sama.“ Beindu athyglinni að nokkrum myndum og myndatextum í 11. og 12. kafla eða 34. og 36. kafla.