Hvað geturðu sagt um blöðin?
Varðturninn 1. janúar
„Eitt af því sem aðgreinir mennina frá dýrunum er hæfileikinn til að greina rétt frá röngu. Því miður gera margir það sem illt er. Hvað heldurðu að valdi því? [Gefðu kost á svari. Lestu síðan Jeremía 17:9 eða Opinberunarbókina 12:9.] Í þessu blaði kemur fram hvernig við getum vitað hvað er rétt og breytt síðan samkvæmt því.“
Vaknið! janúar-mars
„Tækniframfarir hafa ekki breytt því að mennirnir þurfa á vinum að halda. En hefurðu tekið eftir því að breytingar í þjóðfélaginu hafa gert það að verkum að erfitt getur verið að rækta náin vináttubönd? [Gefðu kost á svari. Lestu síðan Orðskviðina 18:24.] Í þessu blaði er rætt um hvernig við getum eignast góða vini og viðhaldið vinskapnum.“
Kynning á Kröfubæklingnum
„Menn þurfa að takast á við margt í lífinu nú á tímum og því mætti spyrja hvort bænin geti hugsanlega komið okkur að raunverulegu gagni? [Gefðu kost á svari.] Margir segja að bænin veiti þeim innri styrk. [Lestu Filippíbréfið 4:6, 7.] Engu að síður getur þeim fundist að þeir fái ekki bænheyrslu. [Opnaðu Kröfubæklinginn á kafla 7.] Þessi bæklingur útskýrir hvernig bænin getur gagnast okkur sem best.“