Hvað geturðu sagt um blöðin?
Varðturninn janúar-mars
„Margir biðja um að ríki Guðs komi. Sjáðu til dæmis þessa frægu bæn sem Jesús kenndi fylgjendum sínum. [Lestu Matteus 6:9, 10.] Hefurðu einhvern tíma velt fyrir þér hvað þetta ríki er og hvenær það komi? [Gefðu kost á svari.] Í þessu blaði er bent á hvað Biblían segir um málið.“
Vaknið! janúar-mars
„Hér áður fyrr leitaði fólk leiðsagnar í Biblíunni. En nú efast margir um að hægt sé að treysta henni. Hvaða skoðun hefur þú? [Gefðu kost á svari. Lestu síðan 2. Tímóteusarbréf 3:16.] Í þessari sérútgáfu af Vaknið! eru veitt sannfærandi rök fyrir því að Biblían sé innblásin af Guði.“
Varðturninn janúar-mars
„Ertu sammála því sem segir hér? [Lestu Jakobsbréfið 3:2.] Í þessari grein er að finna raunhæf ráð úr Biblíunni um það hvernig við getum forðast að særa okkar nánustu með tali okkar.“ Sýndu greinina sem hefst á bls. 10.
Vaknið! janúar-mars
„Margir eru efins um að Biblíunni sé treystandi eða ímynda sér að hún sé úrelt og óvísindaleg. Hvað finnst þér? [Gefðu kost á svari.] Vissirðu að Biblían fer alltaf með rétt mál þegar hún minnist á vísindaleg efni? [Lestu Jobsbók 26:7.] Í þessari sérútgáfu af Vaknið! er bent á sannfærandi rök fyrir því að Biblíunni sé treystandi.“