Hvað geturðu sagt um blöðin?
Varðturninn 1. janúar
„Telur þú að hægt sé að meta velgengni manna út frá fjárhag þeirra og eignum? [Gefðu kost á svari. Lestu síðan 1. Tímóteusarbréf 6:9, 10.] Enda þótt Biblían fordæmi ekki peninga bendir hún samt á að sönn velgengni sé ekki háð efnislegum auði. Þetta blað fjallar nánar um það.“
Vaknið! janúar-mars
„Öllum finnst mikilvægt að fá góða læknismeðferð. Vissirðu að margir læknar hika núorðið við að gefa sjúklingum blóð? [Gefðu kost á svari.] Í þessu blaði er fjallað um ástæðuna. Þar kemur einnig fram hvers vegna blóð er verðmætt í augum Guðs.“ Lestu 3. Mósebók 17:11.
Vaknið! janúar-mars
„Ýmsir trúarhópar hafa ólíkar skoðanir á neyslu áfengis. Hvað heldurðu að Biblían segi um málið? [Gefðu kost á svari.] Þó að fyrsta kraftaverk Jesú hafi verið að breyta vatni í vín er að finna eftirfarandi áminningarorð í Biblíunni. [Lestu Orðskviðina 20:1.] Í þessari grein er fjallað um öfgalaust viðhorf Biblíunnar til áfengis.“ Sýndu greinina sem byrjar á bls. 24.