Leggjum sem fyrst af stað
Þegar við hittumst í samansöfnun fyrir boðunarstarfið erum við meðal bræðra og systra og njótum þess að ræða saman. En að samansöfnun lokinni ættum við að reyna að leggja sem fyrst af stað á starfssvæðið. Boðunarstarf okkar er áríðandi (2. Tím. 4:2) Því lengur sem við dokum við, þeim mun minni tíma höfum við í boðunarstarfinu. Við munum fá næg tækifæri til að njóta uppbyggjandi félagsskapar starfsfélaga okkar þegar við vinnum saman úti á svæðinu. Þegar við leggjum sem fyrst af stað sýnum við iðjusemi í þjónustu Jehóva og sonar hans. – Rómv. 12:11.