Það krefst undirbúnings að vera góður kennari
Jesús var spurður sömu spurningarinnar varðandi eilíft líf við að minnsta kosti tvö tækifæri og í bæði skiptin sneið hann svarið að þörfum spyrjandans. (Lúk. 10:25-28; 18:18-20) Þess vegna ættum við að undirbúa okkur fyrir fram með þarfir nemandans í huga þótt við þekkjum biblíunámsefnið vel. Hvaða atriði á nemandinn erfitt með að skilja eða sætta sig við? Hvaða biblíuvers, af þeim sem vísað er í, ættum við að lesa fyrir hann? Hvað ættum við að reyna að fara yfir mikið námsefni? Við gætum þurft að finna líkingu eða koma með útskýringu eða nokkrar spurningar til að hjálpa nemandanum að meðtaka efnið. En þar sem Jehóva lætur frækorn sannleikans vaxa í hjarta nemandans ættum við líka að biðja hann um að blessa undirbúning okkar, biblíunemandann og viðleitni okkar til að hjálpa nemandanum að styrkja trú sína. – 1. Kor. 3:6; Jak. 1:5.