Horft á heiminn
Í Tansaníu er einn læknir á hverja 64.000 íbúa. — THE CITIZEN, TANSANÍU.
,Að minnsta kosti 1 milljarður fátækra er vannærður að staðaldri og Sameinuðu þjóðirnar munu ekki ná því markmiði sínu að fækka hungruðum í heiminum verulega fyrir 2015.‘ — SCIENCE, BANDARÍKJUNUM.
Samanlögð sala „hundrað stærstu hergagnaframleiðenda í heimi“ nam jafnvirði 385 milljarða dollara árið 2008, en það var aukning um 39 milljarða dollara frá árinu á undan. — ALÞJÓÐAFRIÐARRANNSÓKNASTOFNUNIN Í STOKKHÓLMI.
Of lítið af sýklum?
„Rannsóknir okkar benda til þess að ofurhreint og ofurþrifalegt umhverfi snemma á ævinni geti stuðlað að meiri bólgum hjá fullorðnum, en það eykur síðan hættuna á alls konar sjúkdómum.“ Þetta segir Thomas McDade en hann er dósent við Northwestern-háskóla í Illinois í Bandaríkjunum. Í samanburðarrannsókn á filippeyskum börnum og bandarískum kom í ljós að á heildina litið fengu þau fyrrnefndu miklu fleiri smitsjúkdóma á barnsaldri. En gagnstætt því sem búist var við var ungt fullvaxta fólk á Filippseyjum með mun minna af c-virku prótíni (CRP) í blóðinu en það eykst við bólgur. Niðurstaðan er sú að það geti verndað fullorðna gegn banvænum sjúkdómum að komast í snertingu við algenga sýkla á barnsaldri.
Vinnusemi á undanhaldi
Finnskir atvinnurekendur eru margir hverjir gáttaðir á því að ný kynslóð atvinnuleitenda virðist ekki hafa hugmynd um þá félagsfærni sem er nauðsynleg til að tolla í vinnu. „Nýliðarnir hafa tilhneigingu til að túlka vinnutímann frjálslega og halda að þeir geti komið og farið þegar þeim sýnist.“ Þetta sagði Anne Mikkola í viðtali við finnska ríkissjónvarpið en hún rekur veitingahús. Reglur um klæðnað og hegðun vefjast einnig fyrir nýja starfsfólkinu. Í þjónustugeiranum ber sérstaklega á því að vinnuveitendur þurfi að benda starfsmönnum á hvað sé ekki viðeigandi klæðnaður. Mörkin milli vinnu og einkalífs eru líka orðin óljós eins og sjá má af því að kunningjar nýju starfsmannanna kíkja gjarnan í heimsókn á vinnustaðinn til að spjalla.
Landamæradeila „leyst“
Langstæð deila Bangladessa og Indverja um óbyggða smáeyju á Bengalflóa hefur nú verið leyst — vegna hækkandi sjávarborðs. Indverjar kölluðu eyna New Moore-eyju og Bangladessar South Talpatti-eyju. Hæst hefur hún staðið 1,9 metra yfir sjávarmáli. Nýlegar gervihnattamyndir sýna hins vegar að hún er nú sokkin í sæ. „Hlýnun jarðar hefur nú leyst úr deilu sem ríkin tvö gátu ekki útkljáð með margra ára viðræðum,“ segir prófessor Sugata Hazra við hafrannsóknadeild Jadavpur-háskóla í Kalkútta á Indlandi.