15 Ég set fjandskap+ milli þín+ og konunnar+ og milli afkomenda þinna+ og afkomanda* hennar.+ Hann mun kremja* höfuð þitt+ og þú munt höggva hann í hælinn.“*+
44 Djöfullinn er faðir ykkar og þið viljið gera það sem faðir ykkar þráir.+ Hann var morðingi þegar hann hófst handa*+ og var ekki staðfastur í sannleikanum því að sannleikurinn býr ekki í honum. Þegar hann lýgur fer hann að eðli sínu því að hann er lygari og faðir lyginnar.+
8 Sá sem heldur áfram að syndga er undir áhrifum Djöfulsins þar sem Djöfullinn hefur syndgað frá upphafi.*+ Sonur Guðs birtist til að brjóta niður* verk Djöfulsins.+
9 Drekanum mikla+ var kastað niður, hinum upphaflega höggormi+ sem er kallaður Djöfull+ og Satan+ og afvegaleiðir alla heimsbyggðina.+ Honum var kastað niður til jarðar+ og englum hans var kastað niður með honum.