Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • Jesaja 58
  • Biblían – Nýheimsþýðingin

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

Jesaja – yfirlit

      • Rétt og röng leið til að fasta (1–12)

      • Að gleðjast á hvíldardeginum (13, 14)

Jesaja 58:1

Millivísanir

  • +Jes 1:2; 31:6; 59:13

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Spádómur Jesaja 2, bls. 276-277

Jesaja 58:2

Millivísanir

  • +Jes 29:13; Esk 33:32
  • +Jes 1:14, 15

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Spádómur Jesaja 2, bls. 277

Jesaja 58:3

Millivísanir

  • +Mal 3:14
  • +3Mó 16:29
  • +Jer 34:15, 16; Mík 3:2–4

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Spádómur Jesaja 2, bls. 279

Jesaja 58:4

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Spádómur Jesaja 2, bls. 279

Jesaja 58:5

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Spádómur Jesaja 2, bls. 279

Jesaja 58:6

Millivísanir

  • +Jer 34:8, 9
  • +Okv 28:27

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Spádómur Jesaja 2, bls. 280-281

Jesaja 58:7

Millivísanir

  • +Sl 41:1; 112:9; Okv 19:17; 22:9
  • +Esk 18:7, 8; Jak 2:15, 16; 1Jó 3:17

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Spádómur Jesaja 2, bls. 281-282

Jesaja 58:8

Millivísanir

  • +Okv 4:18
  • +2Mó 14:19; Jes 52:12

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Spádómur Jesaja 2, bls. 282

Jesaja 58:9

Millivísanir

  • +Jes 32:6; 59:3

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Spádómur Jesaja 2, bls. 282-284

Jesaja 58:10

Millivísanir

  • +5Mó 15:7, 8
  • +Sl 37:5, 6

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Spádómur Jesaja 2, bls. 282-284

Jesaja 58:11

Millivísanir

  • +Jes 49:10
  • +Jes 61:11; Jer 31:12

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Spádómur Jesaja 2, bls. 284

Jesaja 58:12

Neðanmáls

  • *

    Orðrétt „skörðin“.

Millivísanir

  • +Neh 2:5; Jer 31:38
  • +Jes 61:4
  • +Neh 6:1; Am 9:11, 14

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Spádómur Jesaja 2, bls. 284-285

Jesaja 58:13

Millivísanir

  • +Neh 13:15; Jes 56:2; Jer 17:21
  • +5Mó 5:12–14

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Spádómur Jesaja 2, bls. 285-286

Jesaja 58:14

Neðanmáls

  • *

    Eða „njóta erfðalands“.

Millivísanir

  • +5Mó 32:13
  • +Sl 105:10, 11; Jer 3:18

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Spádómur Jesaja 2, bls. 285-287, 288-289

Almennt

Jes. 58:1Jes 1:2; 31:6; 59:13
Jes. 58:2Jes 29:13; Esk 33:32
Jes. 58:2Jes 1:14, 15
Jes. 58:3Mal 3:14
Jes. 58:33Mó 16:29
Jes. 58:3Jer 34:15, 16; Mík 3:2–4
Jes. 58:6Jer 34:8, 9
Jes. 58:6Okv 28:27
Jes. 58:7Sl 41:1; 112:9; Okv 19:17; 22:9
Jes. 58:7Esk 18:7, 8; Jak 2:15, 16; 1Jó 3:17
Jes. 58:8Okv 4:18
Jes. 58:82Mó 14:19; Jes 52:12
Jes. 58:9Jes 32:6; 59:3
Jes. 58:105Mó 15:7, 8
Jes. 58:10Sl 37:5, 6
Jes. 58:11Jes 49:10
Jes. 58:11Jes 61:11; Jer 31:12
Jes. 58:12Neh 2:5; Jer 31:38
Jes. 58:12Jes 61:4
Jes. 58:12Neh 6:1; Am 9:11, 14
Jes. 58:13Neh 13:15; Jes 56:2; Jer 17:21
Jes. 58:135Mó 5:12–14
Jes. 58:145Mó 32:13
Jes. 58:14Sl 105:10, 11; Jer 3:18
  • Biblían – Nýheimsþýðingin
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • 6
  • 7
  • 8
  • 9
  • 10
  • 11
  • 12
  • 13
  • 14
Biblían – Nýheimsþýðingin
Jesaja 58:1–14

Jesaja

58 „Kallaðu fullum hálsi, haltu ekki aftur af þér!

Láttu röddina óma eins og horn.

Segðu þjóð minni frá uppreisn hennar,+

afkomendum Jakobs frá syndum þeirra.

 2 Þeir leita mín dag eftir dag

og segjast vilja þekkja vegi mína

eins og þeir væru þjóð sem hefði stundað réttlæti

og hefði ekki snúið baki við réttlæti Guðs síns.+

Þeir biðja mig um réttláta dóma

eins og þeir vildu nálgast Guð:+

 3 ‚Af hverju sérðu ekki að við föstum?+

Af hverju tekurðu ekki eftir að við auðmýkjum okkur?‘+

Af því að þið hugsið bara um eigin hag þegar þið fastið

og þið kúgið verkamenn ykkar.+

 4 Föstur ykkar enda með rifrildi og átökum

og þið sláið með hnefa illskunnar.

Þið getið ekki fastað eins og núna og ætlast til að rödd ykkar heyrist á himni.

 5 Er það svona fasta sem mér líkar:

dagur þegar menn auðmýkja sig,

hengja höfuðið eins og sefstrá

og búa um sig á sekk og ösku?

Kallarðu það föstu og dag sem Jehóva líkar?

 6 Nei, þetta er fastan sem ég vil sjá:

Að þið fjarlægið fjötra illskunnar,

leysið bönd oksins,+

veitið kúguðum frelsi+

og brjótið sundur hvert ok.

 7 Deilið brauði ykkar með hungruðum,+

takið fátæka og heimilislausa inn á heimili ykkar,

gefið föt þeim sem þið sjáið að er nakinn+

og snúið ekki baki við þeim sem er hold ykkar og blóð.

 8 Þá mun ljós þitt brjótast fram eins og dögunin+

og þú læknast fljótt.

Réttlæti þitt fer á undan þér

og dýrð Jehóva verður bakvörður þinn.+

 9 Þá muntu kalla og Jehóva svarar,

þú hrópar á hjálp og hann segir: ‚Hér er ég!‘

Ef þú fjarlægir okið

og hættir að benda og vera illkvittinn,+

10 ef þú gefur hungruðum það sem þig sjálfan langar í+

og annast bágstadda,

þá skín ljós þitt í myrkrinu

og myrkrið hjá þér verður eins og hábjartur dagur.+

11 Jehóva mun alltaf leiða þig

og sjá um þig, jafnvel í skrælnuðu landi.+

Hann styrkir bein þín

og þú verður eins og vel vökvaður garður,+

eins og uppspretta sem aldrei þrýtur.

12 Þín vegna verða fornar rústir endurreistar+

og þú skalt leggja aftur grundvöll liðinna kynslóða.+

Þú verður kallaður ‚sá sem gerir við múrinn‘,*+

‚sá sem bætir vegina þar sem menn búa‘.

13 Ef þú heldur hvíldardaginn og hugsar ekki um eigin hag á heilögum degi mínum+

og kallar hvíldardaginn mesta gleðigjafa þinn, heilagan dag Jehóva, dag sem ber að virða,+

og þú virðir hann í stað þess að hugsa um eigin hag og fara með innantóm orð,

14 þá verður Jehóva mesti gleðigjafi þinn

og ég læt þig geysast fram á hæðum jarðar.+

Ég læt þig lifa á erfðalandi* Jakobs forföður þíns+

því að Jehóva hefur talað.“

Íslensk rit (1985-2025)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila