Guðveldisfréttir
Albanía: Í júlí var nýtt boðberahámark, 353 boðberar, og aldrei fyrr hefur verið dreift eins mörgum blöðum. Safnaðarboðberar voru að meðaltali 22,4 klukkustundir í boðunarstarfinu og stýrðu 1073 heimabiblíunámum.
Grænland: Alls lögðu 134 boðberar inn starfsskýrslu fyrir júlí. Það var nýtt hámark.
Kamerún: Nýrri deildarskrifstofu var komið á laggirnar í júlí og á sama tíma var nýtt boðberahámark með 21.323 boðbera.
Saír: Þrátt fyrir þær hörmulegu aðstæður sem straumur hundruð þúsunda flóttamanna til Saír hefur haft í för með sér, náðist nýtt boðberamet, 83.442, í júlí. Bræðurnir hafa lagt sig frábærlega fram við að hjálpa hver öðrum og þeir segja að utanaðkomandi hjálparstarf sé mikils metið.