Hvað geturðu sagt um blöðin?
Varðturninn 1. júní
„Í ljósi heimsatburða velta margir fyrir sér af hverju saklaust fólk deyi langt um aldur fram. Hefurðu hugleitt hvers vegna við deyjum? [Gefðu kost á svari og sýndu síðan rammann á blaðsíðu 7.] Myndir þú vilja sjá hvað Biblían segir um einhverja af þessum algengu hugmyndum?“ Ef mögulegt er skaltu lesa ritningarstað sem vitnað er í.
Vaknið! apríl-júní
„Við lítum ef til vill á það sem sjálfsagðan hlut að hafa þak yfir höfuðið. Hins vegar eru milljónir flóttamanna um heim allan sem reika hjálparvana um og finna aldrei öruggt skjól. Tímaritið Vaknið! ræðir um undirrót vandans og einnig um það loforð Biblíunnar að einhvern tíma munu allir eiga öruggan samastað.“
Kynning fyrir boðunarstarfið
Heldur þú að við mennirnir getum einhvern tíma lifað hamingjuríku lífi hér á jörðinni? [Gefðu kost á svari og lestu Opinberunarbókina 21:3, 4. Skýrðu versin stuttlega.] Biblían segir að Guðsríki komi þessu til leiðar. Og hún segir einnig hvernig þetta ríki kemur á réttlæti og góðu ástandi hér á jörð.“ Lestu Daníel 2:44 og skýrðu versið stuttlega. Síðan gætirðu spurt: „Veistu hvaða ríki þetta er? [Gefðu kost á svari.] Hér er átt við Guðsríki sem okkur er kennt að biðja um í Faðirvorinu. [Lestu Matteus 6:9, 10.] Þetta er ríkisstjórn sem mun fara með yfirráð yfir allri jörðinni.“ [Bjóddu síðan rit sem tengjast efninu.]