Hvað geturðu sagt um blöðin?
Vaknið! október-desember
„Heldurðu að börn búi við hættulegri aðstæður núna en fyrr á árum? [Gefðu kost á svari.] Margir telja að við lifum á þeim tímum sem er lýst hérna. [Lestu 2. Tímóteusarbréf 3:1-5.] Í þessu blaði er að finna ýmis hagnýt ráð til að hjálpa foreldrum að vernda börnin gegn kynferðisafbrotamönnum.“
Vaknið! október-desember
„Flestir þrá góða heilsu og langt líf. Heldurðu að jákvæðni geti bætt heilsufarið? [Gefðu kost á svari. Lestu síðan Orðskviðina 17:22.] Í þessari grein er rætt um gildi þess að temja sér bjartsýni.“ Sýndu greinina sem byrjar á blaðsíðu 18.
Vaknið! október-desember
„Allir hafa orðið fyrir því að missa ástvin í dauðann. Heldurðu að hinir dánu fylgist með okkur frá himnum? [Gefðu kost á svari.] Taktu eftir því sem Jesús sagði þegar Lasarus dó. [Lestu Jóhannes 11:11.] Í þessari grein er rætt um það hvort hinir dánu séu lifandi einhvers staðar eða hvort þeir séu sofandi og bíði upprisu.“ Bentu á greinina sem hefst á bls. 28.