Hvað geturðu sagt um blöðin?
Varðturninn júl.-sept.
„Margir segjast aðeins trúa því sem þeir geta séð. Ertu sammála þeim? [Gefðu kost á svari. Lestu síðan Rómverjabréfið 1:20.] Í þessu blaði er bent á þrjá eiginleika Guðs sem sjást greinilega í sköpunarverkinu og rætt er um hvaða áhrif þessir eiginleikar hafa á okkur.“
Varðturninn júl.-sept.
„Tíðar náttúruhamfarir nú á dögum hafa fengið suma til að velta því fyrir sér hvort Guð sé að refsa okkur. Hvað heldur þú? [Gefðu kost á svari og lestu síðan 1. Jóhannesarbréf 4:8.] Þessi grein útskýrir hvers vegna Guð er ekki valdur að náttúruhamförum og þeim þjáningum sem þær hafa í för með sér.“ Sýndu greinina á bls. 30.
Vaknið! júl.-sept.
„Heldurðu að við lifum á þeim tímum sem lýst er hérna? [Lestu 2. Tímóteusarbréf 3:1-4 og gefðu kost á svari.] Það er full ástæða til að gefa þessu alvarlegan gaum vegna þess að þegar hinir síðustu dagar taka enda blasir við björt framtíð. Það er fjallað nánar um þetta í blaðinu.“