Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • mrt grein 15
  • Hvernig getum við tekist á við einangrun?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hvernig getum við tekist á við einangrun?
  • Fleiri viðfangsefni
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Styrktu samband þitt við Guð
  • Lestu kafla í Biblíunni sem veita huggun
  • Kynntu þér hvers vegna ástandið í heiminum er svona slæmt
  • Forðastu óþarfa kvíða
  • Ræktaðu sambandið við vini þína
  • Hreyfðu þig reglulega
  • Að eiga vini í kærleikslausum heimi
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2009
  • Varpið allri áhyggju ykkar á Jehóva
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2016
  • Þú getur átt góða og trausta vini
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1996
  • Vandaðu val þitt á vinum
    Von um bjarta framtíð – biblíunámskeið
Sjá meira
Fleiri viðfangsefni
mrt grein 15
Kona starir út um glugga heima hjá sér.

Hvernig getum við tekist á við einangrun?

Finnst þér þú vera einangraður og einmana? Ef svo er gæti þér liðið eins og sálmaritaranum sem sagði: ‚Ég líkist einmana fugli á þaki.‘ (Sálmur 102:7) Viskan sem er að finna í Biblíunni gæti komið þér að gagni til að takast á við vandamál sem fylgja einangrun.

  • Styrktu samband þitt við Guð

  • Lestu kafla í Biblíunni sem veita huggun

  • Kynntu þér hvers vegna ástandið í heiminum er svona slæmt

  • Forðastu óþarfa kvíða

  • Ræktaðu sambandið við vini þína

  • Hreyfðu þig reglulega

Styrktu samband þitt við Guð

Þú getur verið glaður, jafnvel þegar þú ert einangraður, ef þú ert vakandi fyrir andlegri þörf þinni og sinnir henni. (Matteus 5:3, 6) Eftirfarandi leiðir, sem eru ókeypis, geta hjálpað þér af stað.

  • Biblía á netinu sem er nákvæm og auðvelt að lesa.

  • Stutt myndbönd um sum grundvallarsannindi Biblíunnar.

  • „Biblíuspurningar“ – Svör við spurningum sem margir velta fyrir sér.

  • „Líkjum eftir trú þeirra“ – Þessi greinaröð hjálpar þér að sjá fyrir þér atburði í lífi trúfastra manna og kvenna sem Biblían greinir frá.

  • „Býr hönnun að baki?“ – Þessi greinaröð leggur áherslu á fegurð og margbreytileika náttúrunnar.

Lestu kafla í Biblíunni sem veita huggun

Þessi biblíuvers hafa veitt mörgum huggun. Frekar en að lesa marga kafla í einu skaltu reyna að nota tímann í einangruninni sem tækifæri til að hugleiða hvern kafla og biðja til Guðs. – Markús 1:35.

  • Sálmur 23:1–6

  • Sálmur 34:2–23

  • Sálmur 46:2–12

  • Sálmur 63:7–9

  • Sálmur 91:1–6

  • Matteus 6:25–34

  • 2. Korintubréf 1:3, 4

  • Filippíbréfið 4:6, 7

  • 1. Pétursbréf 5:6, 7

Kynntu þér hvers vegna ástandið í heiminum er svona slæmt

Þér gengur betur að takast á við hvað sem á dynur þegar þú veist hvers vegna slæmir hlutir gerast og hvernig Guð ætlar að bæta skaðann. – Jesaja 65:17.

  • Af hverju leyfir Guð þjáningar?

  • Hvað segir Biblían um veikindi og heilsu?

  • Hvert er tákn hinna síðustu daga?

  • Hverjir eru riddararnir fjórir í Opinberunarbókinni?

  • Hverju kemur ríki Guðs til leiðar?

Forðastu óþarfa kvíða

Eftirfarandi greinar geta hjálpað þér að takast á við álagið sem fylgir einangrun og ‚hætta að hafa áhyggjur‘. – Matteus 6:25.

  • Að takast á við streitu

  • Getur Biblían hjálpað okkur að takast á við áhyggjur og kvíða?

  • Skuldir og fjárhagserfiðleikar

  • Kvíði ungs fólks

Ræktaðu sambandið við vini þína

Vinir geta hjálpað þér að hugsa skýrar og vera glaðari og eru jafnvel ennþá mikilvægari þegar það er erfitt að hittast. Ef þú þarft að halda þig heima gætirðu kannski notað síma, tölvu með myndavél eða myndsíma til að halda sambandi við vini og eignast nýja. Eftirfarandi greinar geta hjálpað þér að eignast sanna vini og til að vera sjálfur sannur vinur. – Orðskviðirnir 17:17.

  • Hvernig eru sannir vinir?

  • Ætti ég að stækka vinahópinn?

  • Af hverju á ég enga vini?

  • Vertu góður vinur með því að sýna örlæti

  • Vertu góður vinur með því að sýna þakklæti

Hreyfðu þig reglulega

Biblían viðurkennir: „Líkamleg æfing er gagnleg.“ (1. Tímóteusarbréf 4:8) Hreyfing getur hjálpað þér að hugsa skýrar og vera ánægðari, sérstaklega þegar þú ert einangraður. Jafnvel þótt þú þurfir að halda þig heima geturðu að öllum líkindum gert ýmislegt til að hreyfa þig.

  • Hvernig get ég fengið löngun til að hreyfa mig?

  • Líkamleg heilsa og þrautseigja

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila