Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • g 11.14 bls. 4-7
  • Útbruni – hvað er til ráða?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Útbruni – hvað er til ráða?
  • Vaknið! – 2014
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • 1. HAFÐU SKÝRA FORGANGSRÖÐ.
  • 2. EINFALDAÐU LÍF ÞITT.
  • 3. LÆRÐU AÐ SEGJA NEI VIÐ VERKEFNUM.
  • 4. ENDURNÆRÐU ÞIG.
  • Útbruni — ert þú næstur?
    Vaknið! – 1995
  • Útbruni — hvað geturðu gert?
    Vaknið! – 1995
  • Útbruni — hverjir eru í hættu og hvers vegna?
    Vaknið! – 1995
  • Hvernig get ég komið í veg fyrir útbruna?
    Ungt fólk spyr
Sjá meira
Vaknið! – 2014
g 11.14 bls. 4-7

FORSÍÐUEFNI

Útbruni – hvað er til ráða?

Anil sem tókst á við kulnun í starfi.

ANIL var yfirkominn af þreytu. Hann hafði skipt um vinnu til að fá betri laun og hækka í áliti. En nú þurfti hann að vinna langt fram á kvöld og líka um helgar, stundum allt að 80 klukkustundir á viku. Hann segir: „Á vinnustaðnum var ekkert skipulag og öll ábyrgðin lenti á mér. Ég hugsaði með mér: ,Hvað er ég búinn að koma mér í? Ég á eftir að drepa mig á vinnunni ef ég geri ekki eitthvað í málinu.‘“ Anil var á hraðri leið með að brenna út.

Kulnun í starfi er annað og meira en venjuleg þreyta eða vinnustreita. Sá sem brennur út er sífellt örmagna og finnur til reiði og vanmáttarkenndar. Honum hættir til að verða sama um vinnuna sína, missa áhugann og verða afkastalítill. Rannsóknir tengja útbruna þar að auki við ýmsa tilfinningalega og líkamlega kvilla.

Hvað veldur útbruna? Of mikið vinnuálag á oft hlut að máli. Vegna efnahagserfiðleika krefjast vinnuveitendur stundum lengri vinnutíma af starfsmönnum sínum, jafnvel fyrir lægri laun. Tæknin gerir sumum kleift að vera stöðugt tengdir vinnunni og skilin milli vinnu og frítíma verða óljós. Sumir eru hræddir um að missa vinnuna, þeim finnst þeir ráða litlu um hana eða ekki njóta sanngirni á vinnustaðnum. Það getur ýtt undir kulnun í starfi. Það sama er að segja um óljósa forgangsröð verkefna eða ágreining milli vinnufélaga.

Útbruni getur líka verið sjálfskaparvíti. Sumir taka á sig sífellt meiri vinnu í leit að starfsframa og til að þéna meira. Þeir gætu gengið í þá gildru að skuldbinda sig um of og þá er stutt í að þeir brenni út.

Hvað er til ráða ef þú ert að brenna út? Þú sérð kannski enga möguleika á að bæta ástandið ef þér finnst þú fastur í aðstæðum sem þú ræður engu um. Skoðaðu samt eftirfarandi fjögur ráð við útbruna. Þú átt kannski fleiri úrræði en þú gerir þér grein fyrir.

1. HAFÐU SKÝRA FORGANGSRÖÐ.

Hamingjusöm fjölskylda.

Hvað skiptir þig mestu máli? Margir myndu væntanlega setja fjölskylduna og heilsuna ofarlega á listann. Ef þú brennur út bitnar það eflaust á þessu tvennu.

Með því að hafa skýra forgangsröð ertu undir það búinn að taka erfiðar ákvarðanir og gera málamiðlanir. Þú skynjar kannski að þú sért að brenna út í vinnunni en finnst þú hvorki geta skipt um vinnu eða unnið minna því að þú þarft á tekjunum að halda. En þó að allir þurfi einhverjar tekjur má spyrja sig hve miklar tekjur séu nauðsynlegar og að hvaða marki vinnan bitni á því sem maður metur mest.

Láttu ekki aðra hafa of mikil áhrif á hvernig þú forgangsraðar í lífinu. Forgangsröð vinnuveitanda þíns er líklega ekki sú sama og þín. Þú þarft ekki að setja vinnuna í fyrsta sæti þó að þú sjáir aðra gera það.

MEGINREGLA: „ENGINN ÞIGGUR LÍF AF EIGUM SÍNUM ÞÓTT AUÐUGUR SÉ.“ – LÚKAS 12:15.

2. EINFALDAÐU LÍF ÞITT.

Einföld máltíð.

Til að minnka álagið og fá meiri tíma fyrir það sem þú metur mest gætirðu kannski minnkað vinnuna, beðið vinnuveitanda þinn um að gera minni kröfur til þín eða skipt um vinnu ef þú telur það nauðsynlegt. Hvað sem þú ákveður að gera þarftu eflaust að breyta lífsstílnum og gæta þess að eyða ekki um efni fram. Það er hægt og kannski auðveldara en þú heldur.

Neysluþjóðfélög víða um heim telja fólki trú um að hamingjan sé háð tekjum þess og eignum. En það er ekki rétt. Einfaldari lífsstíll getur gert lífið ánægjulegra og veitt meira frelsi. Minnkaðu útgjöldin og sparaðu peninga til að auðvelda þér að fara út í slíkar breytingar. Reyndu að borga upp skuldir eða saxa á þær. Ræddu við fjölskylduna um hverju þið þurfið að breyta og fáðu hana til að vinna með þér.

MEGINREGLA: „EF VIÐ HÖFUM FÆÐI OG KLÆÐI ÞÁ LÁTUM OKKUR ÞAÐ NÆGJA.“ – 1. TÍMÓTEUSARBRÉF 6:8.

3. LÆRÐU AÐ SEGJA NEI VIÐ VERKEFNUM.

Ef þú ert undir óhóflegu álagi eða viðvarandi vandamál í vinnunni gerir þér erfitt fyrir skaltu ræða málið við yfirmann þinn. Þegar mögulegt er skaltu reyna að koma með lausnir sem henta bæði þér og vinnuveitandanum. Fullvissaðu hann um að þú gerir þitt besta í vinnunni og útskýrðu fyrir honum hvað þú sért reiðubúinn að gera. Láttu hann jafnframt vita skýrt og greinilega hvað þú getur ekki gert.

Maður að benda á armbandsúrið sitt.

Sýndu fyrirhyggju og vertu raunsær. Ef þú vilt minnka við þig vinnuna ætlast vinnuveitandinn væntanlega til að þú sættir þig við lægri kjör. Vertu viðbúinn að geta misst vinnuna og tilbúinn að bregðast við því. Mundu að þú átt meiri möguleika á að finna aðra vinnu meðan þú ert enn í starfi.

Þó að þú hafir komist að samkomulagi við yfirmann þinn um vinnutíma máttu gera ráð fyrir að hann reyni aftur að fá þig til að taka að þér meiri vinnu. Hvað getur hjálpað þér að láta ekki undan? Að standa við það sem þú hefur lofað. Þá ertu í betri aðstöðu til að ætlast til þess sama af vinnuveitandanum og þú getur vænst þess að hann ætlist ekki til meira af þér en um var samið.

MEGINREGLA: „ÞEGAR ÞÉR TALIÐ SÉ JÁ YÐAR JÁ OG NEI SÉ NEI.“ – MATTEUS 5:37.

4. ENDURNÆRÐU ÞIG.

Þú losnar kannski ekki alveg við allt álag þó að vinnuumhverfið sé í ágætu lagi. Þú gætir samt þurft að kljást við erfiða einstaklinga og óþægilegar aðstæður. Gefðu þér því tíma fyrir hæfilega hvíld og afþreyingu. Mundu að afþreying þarf ekki að kosta mikið til að vera endurnærandi fyrir þig og fjölskylduna.

Kona sem tekur sér tíma til að slaka á og lesa.

Leggðu rækt við áhugamál og vini utan vinnunnar og varastu að skilgreina sjálfan þig eftir því hve mikið þú vinnur eða við hvað. Hvers vegna er það mikilvægt? Í bókinni Your Money or Your Life (Peningana eða lífið) segir: „Þú ert annað og meira en það sem þú gerir til að afla peninga.“ Ef sjálfsmynd þín og sjálfsvirðing er fyrst og fremst byggð á vinnunni er erfitt fyrir þig að leggja minni áherslu á vinnu.

MEGINREGLA: „BETRI ER HNEFAFYLLI AF RÓ EN BÁÐAR HENDUR FULLAR AF STRITI OG EFTIRSÓKN EFTIR VINDI.“ – PRÉDIKARINN 4:6.

Er hægt að gera nauðsynlegar breytingar til að ná sér eftir útbruna? Já, það er hægt. Anil, sem var nefndur í upphafi greinarinnar, gerði það. Hann segir: „Ég hafði samband við fyrrverandi vinnuveitanda minn og bað hann um að ráða mig aftur, sem hann og gerði. Það var vandræðalegt að hitta fyrrverandi vinnufélaga mína því að ég hafði talað um að ég myndi hafa það miklu betra á nýja staðnum. Ég lækkaði líka töluvert í launum. En ég fann hugarró og fékk meiri tíma fyrir fjölskylduna og annað sem ég met mikils.“

ÞAU NÁÐU SÉR EFTIR ÚTBRUNA

Hjónin Wayne og Marie eru rúmlega þrítug og búa í Bandaríkjunum.

Hvað varð til þess að þið brunnuð út?

Wayne: Við rákum nokkur fyrirtæki og vorum skuldug upp fyrir haus. Mig langaði til að byggja upp reksturinn að því marki að við gætum átt þægilegt líf og ég gæti unnið minna en samt þénað nóg. Markmiðið var að minnka álagið, en í staðinn jókst það.

Hvaða áhrif hafði það á ykkur?

Wayne: Við áttuðum okkur á að það sem við unnum hörðum höndum til að eignast – fallegri föt, stærra hús og dýrari frí – veitti okkur ekki hamingju. Ég var tilfinningalega úrvinda og missti allan dug.

Marie: Það bitnaði á heilsunni og á hjónabandinu. Okkur hætti að koma vel saman.

Hvað gerðuð þið til að einfalda lífið?

Wayne: Við skoðuðum hvert líf okkar stefndi og hvert við vildum stefna. Við ákváðum að minnka útgjöld fyrirtækisins. Ég var með nýtískulega skrifstofu en sagði henni upp og ég sætti mig við að keyra um á ódýrari bíl. Ég byggði upp einyrkjafyrirtæki og ákvað að færa ekki út kvíarnar. Við borguðum niður skuldir og héldum útgjöldum í lágmarki.

Marie: Það var ekki eins erfitt og ég bjóst við að einfalda lífið. Við hættum að fara eins oft út að borða og borðuðum heima í staðinn. Við fórum í göngutúra og urðum hraustari. Með tímanum fórum við að vinna hluta úr degi og vinna sjálfboðavinnu.

Hvernig er líf ykkar núna?

Marie: Lífið snýst ekki lengur um að þéna peninga. Við fórum að beina huganum að mikilvægari hlutum og hjónabandið batnaði.

Wayne: Lífið er auðveldara og við erum miklu ánægðari.

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila