‚Haltu áfram að vaxa að nákvæmri þekkingu‘
Nákvæm þekking á Guði leiðir til eilífs lífs. (Jóh. 17:3) Við ættum að gera allt sem við getum til að nákvæm þekking okkar á Jehóva fari vaxandi. (Kól. 1:9, 10) Í vikunni, sem hefst 29. apríl, munum við byrja að nema bókina Þekking sem leiðir til eilífs lífs í safnaðarbóknáminu, eins og langflestir bræður okkar um allan heim munu líka gera. Námið mun ekki aðeins efla okkar eigin skilning á orði Guðs heldur verðum við líka færari um að kenna það öðrum. Ef þú og fjölskylda þín gætið þess að búa ykkur vel undir námið, sækja það í hverri viku og taka virkan þátt í því og nota síðan upplýsingarnar í boðunarstarfinu mun það verða ykkur til blessunar.