Spurningakassinn
◼ Á að vera yfirlitskort af starfssvæðinu til sýnis í ríkissalnum?
Já, innrammað yfirlitskort á að vera til sýnis á vegg í ríkissalnum. Það á ekki að hanga á tilkynningatöflunni. Svæðismörk starfssvæðis safnaðarins eiga að sjást og einnig mörk einstakra svæðiskorta á safnaðarsvæðinu ásamt svæðisnúmeri. Svæðismörk safnaða, sem nota sama ríkissal, skulu merkt á kortinu til þess að boðberar og áhugasamir geti séð á hvaða safnaðarsvæði þeir búa. Einnig er gagnlegt að merkja bóknámsstaði inn á kortið til að auðvelda öllum að finna bóknámshópinn sem þeir eiga að tilheyra. Uppfæra á kortið með jöfnu millibili.
Yfirlitskortið minnir alla boðbera á að fá sér einkastarfssvæði og það kemur þeim að gagni við að velja sér starfssvæði í grennd við heimili sitt. Það getur líka sparað tíma eftir samkomur fyrir boðunarstarfið þegar stjórnandinn þarf að beina boðberum fljótt á starfssvæðið sem fara á yfir.
Kortið ber líka vitni um að söfnuðurinn prédikar guðsríkisboðskapinn skipulega og rækilega á úthlutuðu svæði sínu. — Lúk. 9:6.