Upprifjun sérstaka mótsdagsins
Þetta efni verður notað til að veita okkur forsmekkinn af dagskrá sérstaka mótsdagsins fyrir þjónustuárið 2005 og til að rifja hana upp eftir mótið . Í greininni „Nýtt fyrirkomulag á upprifjun mótanna“, sem finna má á blaðsíðu 4 í þessum viðauka, er útskýrt hvernig farið verður yfir efnið. Í upprifjuninni skal taka frá ákveðinn tíma fyrir hverja spurningu þannig að hægt sé að spyrja allra spurninganna. Leggja ætti áherslu á hvernig við getum farið eftir því sem fram kom á mótinu.
ÁRDEGIS
1. Hvers vegna er sífellt meiri þörf á að hlýða á Jehóva? Hvað merkir það að hlýða á Jehóva? („Hvers vegna að hlýða á raust Jehóva?“)
2. Hvernig geta fjölskyldur haft góða andlega dagskrá? („Fjölskyldur sem hlýða á orð Guðs án truflunar“)
3. Hvernig hafa boðberar á farandsvæðinu nýtt sér tækifæri til að vitna óformlega? („Gerið allt Guði til dýrðar“)
4. Hvaða dæmi eru nefnd okkur til viðvörunnar í þriðja og fjórða kafla Hebreabréfsins? Hvernig talar Jehóva til okkar nú á tímum? („Það er okkur til verndar að hlýða á Guð“)
5. Hvaða gagn hafðir þú af skírnarræðunni? („Vígsla og skírn“)
SÍÐDEGIS
6. Hvað vitum við um Jesú þegar hann var unglingur og hvernig líkja unglingar á farandsvæðinu eftir honum? („Unglingar styrkjast í trúnni þegar þeir hlýða vandlega á orð Guðs“)
7. Hvernig geta foreldrar kennt börnum sínum vegi Jehóva frá unga aldri? („Börn sem hlýða á Guð og læra“)
8. Á hvaða sviðum þurfum við að gefa sérstaklega gaum að Jehóva, syni hans og hinum ,trúa og hyggna þjóni‘? (Matt. 24:45) Hvers vegna er það mikilvægt? („Gefðu stöðugt gaum að fræðslunni frá Guði“)