Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 4.13 bls. 3-6
  • Góð hegðun er Guði til heiðurs

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Góð hegðun er Guði til heiðurs
  • Ríkisþjónusta okkar – 2013
  • Svipað efni
  • „Hegðið ykkur vel meðal þjóðanna“
    Ríkisþjónusta okkar – 2014
  • Til minnis vegna umdæmismótsins
    Ríkisþjónusta okkar – 2015
  • Umdæmismótin bera sannleikanum öflugt vitni
    Ríkisþjónusta okkar – 2012
  • Þrír andlega endurnærandi dagar
    Ríkisþjónusta okkar – 2011
Sjá meira
Ríkisþjónusta okkar – 2013
km 4.13 bls. 3-6

Góð hegðun er Guði til heiðurs

1. Hvers vegna vekja vottar Jehóva mikla athygli þegar þeir sækja umdæmismótin?

1 Við vekjum mikla athygli þegar við sækjum umdæmismót. Fréttastofur í mörgum borgum, þar sem mót eru haldin, segja frá mótunum okkar. Verslanir og veitingastaðir fyllast oft af mótsgestum og borgarbúar taka eftir þessum stóra hópi sem er með barmmerki á sér. Hér á eftir eru nokkur minnisatriði sem sýna hvernig góð hegðun okkar á meðan mótið stendur yfir getur verið Guði til heiðurs. – 1. Pét. 2:12.

2. Hvernig getum við heiðrað Guð með því að klæða okkur á viðeigandi hátt þegar við sækjum umdæmismótið?

2 Viðeigandi klæðnaður: Klæðnaður okkar á mótinu getur haft jákvæð áhrif á alla þá sem fylgjast með okkur. Hins vegar tekur fólk oft meira eftir því hvernig við eru klædd þegar við stoppum á bensínstöðvum, fáum okkur að borða á veitingahúsum, erum að versla og þar fram eftir götunum. Þótt við þurfum ekki að vera í sparifötunum við þessi tækifæri ættu fötin að vera viðeigandi, ekki drusluleg eða of hversdagsleg. Þeir sem sjá til okkar ættu að taka eftir því að við skerum okkur úr fjöldanum. (Rómv. 12:2) Við ættum auk þess að hafa barmmerkin á okkur þar sem að það er góð auglýsing fyrir mótið og getur leitt til skemmtilegra samræðna við fólk. Það gerir öðrum mótsgestum líka kleift að þekkja okkur.

3. Hvernig getum við sýnt þolinmæði og kurteisi?

3 Þolinmæði og kurteisi: Nú á tímum þegar margir eru sjálfselskir og vanþakklátir er það upplífgandi að hitta fólk sem sýnir þolinmæði og kurteisi. Starfsfólk verslana og veitingahúsa kann sérstaklega vel að meta það. (2. Tím. 3:1-5) Þegar við tökum frá sæti eða stöndum í röð til að fá nýútkomin rit skulum við ekki hyggja að eigin hag heldur hag annarra. (1. Kor. 10:23, 24) Maður nokkur sagði eftir að hafa sótt sitt fyrsta mót: „Ég er búinn að gleyma um hvað ræðurnar fjölluðu en framkoma vottanna hafði varanleg áhrif á mig.“

4. Hvers vegna ættum við bjóða fram aðstoð okkar á mótinu ef við höfum tök á því?

4 Fúsir sjálfboðaliðar: Sannkristnir menn hafa alltaf verið fúsir til að leggja hönd á plóginn. (Sálm. 110:3) Gætirðu boðið fram aðstoð þína á mótinu? Á einum mótstað buðust um það bil 600 bræður okkar og systur til að þrífa húsið. Starfsfólkið á staðnum sagði: „Við höfum aldrei séð nokkuð þessu líkt. Það er ótrúlegt að allt þetta fólk skuli vera sjálfboðaliðar.“ Við hlökkum mikið til umdæmismótsins 2013. Þar getum við hlustað og lært en það sem meira er þá fáum við tækifæri til að heiðra Guð.

[Rammi á bls. 3-6]

Til minnis vegna umdæmismótsins 2013

◼ Dagskrártímar: Dagskráin hefst kl. 9:20 alla þrjá dagana. Þegar tilkynnt er að tónlistin hefjist ættu allir að ganga til sætis svo að dagskráin geti hafist með virðulegum hætti. Dagskránni lýkur kl. 16:50 á föstudegi og laugardegi og kl. 15:35 á sunnudegi.

◼ Sæti: Við ættum aðeins að taka frá sæti fyrir heimilisfólk, biblíunemendur eða þá sem eru okkur samferða. – 1. Kor. 13:5.

◼ Hádegisverður: Við hvetjum gesti til að taka með sér nesti í stað þess að yfirgefa mótsstaðinn til að borða í hádegishléinu. Hægt er að taka matinn með sér í lítilli tösku eða kæliboxi. Ekki er leyfilegt að vera með glerílát á mótsstaðnum.

◼ Framlög: Við getum sýnt að við kunnum að meta mótið með því að gefa frjáls framlög til alþjóðastarfsins á mótsstaðnum.

◼ Slys og neyðartilfelli: Ef upp kemur neyðartilfelli á mótsstaðnum skal láta salarvörð vita og hann hefur þá samband við þá sem veita skyndihjálp á staðnum. Þá geta hæfir einstaklingar metið stöðuna, veitt viðeigandi aðstoð eða hringt í Neyðarlínuna ef þess gerist þörf.

◼ Lyf: Ef þú þarft á lyfseðilsskyldum lyfjum að halda skaltu gæta þess að hafa þau með þér á mótsstaðinn.

◼ Heyrnarskertir: Í mótssalnum er ákveðið svæði með tónmöskva ætlað fólki með skerta heyrn. Þeir sem hafa viðeigandi heyrnartæki geta nýtt sér þetta. Einnig standa til boða fáein þráðlaus heyrnartól. Hljóðdeildin veitir frekari upplýsingar um þau.

◼ Ilmefni: Flest mót fara fram innandyra í húsnæði með loftræstibúnaði. Það ber vott um tillitssemi að nota sem minnst af sterkum ilmefnum, rakspírum og ilmvötnum því að þau gætu valdið þeim óþægindum sem eru með öndunarfærasjúkdóma eða þess háttar. – 1. Kor. 10:24.

◼ Fylgjum eftir áhuga: Ef við vitnum óformlega fyrir fólki yfir mótshelgina og það sýnir áhuga skulum við biðja viðkomandi um nafn og heimilisfang eða símanúmer þar sem hægt er að ná í hann. Ef við höfum ekki tækifæri til að fylgja áhuganum eftir sjálf ættum við að útfylla eyðublaðið Vinsamlega fylgið eftir (S-43) og afhenda það salarverði eða ritaranum í söfnuðinum okkar.

◼ Veitingastaðir: Ef við förum út að borða skulum við gæta þess að heiðra Jehóva með góðri framkomu okkar.

◼ Gisting: Þeir sem vantar gistingu á höfuðborgarsvæðinu meðan mótið stendur yfir geta fyllt út eyðublað og gefið upp hve margir eru í fjölskyldunni eða hópnum og hvenær þörf sé á gistingu. Eyðublaðið á að senda deildarskrifstofunni sem sendir það áfram til mótsnefndarinnar. Boðberar á höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til að bjóða sig fram til að taka á móti næturgestum. Margir hafa haft ánægju af því að kynnast trúsystkinum betur við þessi tækifæri. Það er mikilvægt að bæði þeir sem óska eftir aðstoð með gistingu og þeir sem vilja bjóða fram húsnæði geri það snemma svo að hægt sé að afgreiða allar fyrirspurnir tímanlega.

◼ Sjálfboðastörf: Þörf er á fúsum höndum einkum við þrif og uppsetningu daginn fyrir mót og svo við frágang eftir að dagskrá lýkur á sunnudegi. Börn yngri en 16 ára geta líka lagt sitt af mörkum með því að vinna undir umsjón foreldra sinna, forráðamanns eða annarrar fullorðinnar manneskju með samþykki foreldranna.

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila