LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU
Tökum framförum í að boða trúna – boðum trúna í síma
HVERS VEGNA ER ÞAÐ MIKILVÆGT? Það er mikilvæg leið til að „boða rækilega fagnaðarboðskapinn“. (Pos 20:24)a Það auðveldar okkur að ná sambandi við fólk þegar aðstæður leyfa ekki að við förum til þeirra.
HVERNIG FÖRUM VIÐ AÐ?
Undirbúðu þig. Veldu umræðuefni við hæfi. Skrifaðu nokkra punkta sem þú vilt nefna. Þú gætir líka undirbúið stutt skilaboð sem þú gætir lesið inn ef þú færð samband við talhólf eða símsvara. Það er gott að sitja við borð með drög að kynningu og annað sem þarf fyrir framan sig, til dæmis tölvu með opið JW Library® eða jw.org®
Slakaðu á. Talaðu eðlilega. Brostu og notaðu tilburði eins og þú myndir gera augliti til auglitis. Forðastu óþarfa þagnir. Það er hjálplegt að hafa starfsfélaga. Ef húsráðandinn spyr spurningar gætirðu endurtekið hana upphátt svo að félagi þinn geti hjálpað þér að finna svarið.
Leggðu grunn að endurheimsókn. Ef viðmælandi þinn sýnir áhuga gætirðu varpað fram spurningu til þess að svara í næsta símtali. Þú gætir boðist til að póstleggja ákveðið rit, senda það í tölvupósti eða koma með það. Þú gætir líka boðist til að senda grein eða myndband í tölvupósti eða með SMS eða bent á ákveðið efni á vefsíðunni okkar.
a Ef það er leyfilegt að boða trúna í síma þar sem þú býrð skaltu gæta þess að fara eftir persónuverndarlögum.