Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • Markús 3
  • Biblían – Nýheimsþýðingin

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

Markús – yfirlit

      • Jesús læknar mann með visna hönd (1–6)

      • Mikill mannfjöldi á ströndinni (7–12)

      • Postularnir 12 (13–19)

      • Lastmæli gegn heilögum anda (20–30)

      • Móðir Jesú og bræður (31–35)

Markús 3:1

Neðanmáls

  • *

    Eða „lamaða“.

Millivísanir

  • +Mt 12:9–14; Lúk 6:6–11

Markús 3:2

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Varðturninn,

    1.11.1995, bls. 25-26

    Mesta mikilmenni, kafli 32

Markús 3:3

Neðanmáls

  • *

    Eða „lömuðu“.

Markús 3:4

Millivísanir

  • +Lúk 14:1–3

Markús 3:5

Millivísanir

  • +Jóh 12:39, 40

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    „Komið og fylgið mér“, bls. 187-188

    Líf okkar og boðun vinnubók fyrir samkomur,

    4.2018, bls. 5

    Varðturninn,

    1.11.1995, bls. 25-26

Markús 3:6

Millivísanir

  • +Mt 22:16; Mr 12:13

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Mesta mikilmenni, kafli 32

Markús 3:7

Millivísanir

  • +Mt 12:15

Markús 3:9

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Mesta mikilmenni, kafli 33

Markús 3:10

Millivísanir

  • +Mt 9:20, 21; Mr 5:27, 28; 6:56

Markús 3:11

Millivísanir

  • +Mt 8:31
  • +Mr 1:23, 24; 5:7; Lúk 4:41

Markús 3:12

Millivísanir

  • +Mt 12:15, 16; Mr 1:25

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Varðturninn,

    15.2.2008, bls. 28

    1.6.1994, bls. 32

Markús 3:13

Millivísanir

  • +Jóh 15:16
  • +Lúk 6:12, 13

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Mesta mikilmenni, kafli 34

Markús 3:14

Neðanmáls

  • *

    Eða „skipaði“.

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Mesta mikilmenni, kafli 34

Markús 3:15

Millivísanir

  • +Mt 10:1

Markús 3:16

Neðanmáls

  • *

    Eða „skipaði“.

Millivísanir

  • +Mt 10:2–4; Lúk 6:14–16; Pos 1:13
  • +Jóh 1:42

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Mesta mikilmenni, kafli 34

Markús 3:17

Millivísanir

  • +Lúk 9:54

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Mesta mikilmenni, kaflar 34, 98

Markús 3:18

Neðanmáls

  • *

    Eða „hinn kappsami“.

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Mesta mikilmenni, kafli 34

Markús 3:19

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Mesta mikilmenni, kafli 34

Markús 3:21

Millivísanir

  • +Jóh 7:5

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Mesta mikilmenni, kafli 41

Markús 3:22

Neðanmáls

  • *

    Heiti sem er notað um Satan.

Millivísanir

  • +Mt 9:34; 10:25; 12:24–29; Lúk 11:15; Jóh 8:48

Markús 3:24

Millivísanir

  • +Lúk 11:17, 18

Markús 3:29

Millivísanir

  • +Mt 12:31, 32; Lúk 12:10
  • +Heb 6:4, 6; 10:26

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Varðturninn,

    1.9.2007, bls. 10

    Mesta mikilmenni, kafli 41

Markús 3:30

Millivísanir

  • +Jóh 7:20; 10:20

Markús 3:31

Millivísanir

  • +Mt 13:55; Jóh 2:12; Pos 1:14
  • +Mt 12:46–50; Lúk 8:19–21

Markús 3:32

Millivísanir

  • +Mr 6:3

Markús 3:34

Millivísanir

  • +Mt 12:49; Heb 2:11

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Mesta mikilmenni, kafli 42

Markús 3:35

Millivísanir

  • +Mt 12:50; Lúk 8:21; Jóh 15:14

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Von um bjarta framtíð, kafli 19

    Mesta mikilmenni, kafli 42

Almennt

Mark. 3:1Mt 12:9–14; Lúk 6:6–11
Mark. 3:4Lúk 14:1–3
Mark. 3:5Jóh 12:39, 40
Mark. 3:6Mt 22:16; Mr 12:13
Mark. 3:7Mt 12:15
Mark. 3:10Mt 9:20, 21; Mr 5:27, 28; 6:56
Mark. 3:11Mt 8:31
Mark. 3:11Mr 1:23, 24; 5:7; Lúk 4:41
Mark. 3:12Mt 12:15, 16; Mr 1:25
Mark. 3:13Jóh 15:16
Mark. 3:13Lúk 6:12, 13
Mark. 3:15Mt 10:1
Mark. 3:16Mt 10:2–4; Lúk 6:14–16; Pos 1:13
Mark. 3:16Jóh 1:42
Mark. 3:17Lúk 9:54
Mark. 3:21Jóh 7:5
Mark. 3:22Mt 9:34; 10:25; 12:24–29; Lúk 11:15; Jóh 8:48
Mark. 3:24Lúk 11:17, 18
Mark. 3:29Mt 12:31, 32; Lúk 12:10
Mark. 3:29Heb 6:4, 6; 10:26
Mark. 3:30Jóh 7:20; 10:20
Mark. 3:31Mt 13:55; Jóh 2:12; Pos 1:14
Mark. 3:31Mt 12:46–50; Lúk 8:19–21
Mark. 3:32Mr 6:3
Mark. 3:34Mt 12:49; Heb 2:11
Mark. 3:35Mt 12:50; Lúk 8:21; Jóh 15:14
  • Biblían – Nýheimsþýðingin
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • 6
  • 7
  • 8
  • 9
  • 10
  • 11
  • 12
  • 13
  • 14
  • 15
  • 16
  • 17
  • 18
  • 19
  • 20
  • 21
  • 22
  • 23
  • 24
  • 25
  • 26
  • 27
  • 28
  • 29
  • 30
  • 31
  • 32
  • 33
  • 34
  • 35
Biblían – Nýheimsþýðingin
Markús 3:1–35

Markús segir frá

3 Jesús gekk aftur inn í samkunduhús. Þar var maður með visna* hönd.+ 2 Farísear fylgdust vandlega með honum til að sjá hvort hann myndi lækna manninn á hvíldardegi því að þeir vildu ákæra hann. 3 Hann sagði við manninn með visnu* höndina: „Stattu upp og komdu fram í miðjan salinn.“ 4 Síðan spurði hann þá: „Er leyfilegt að gera gott eða illt á hvíldardegi, að bjarga lífi eða deyða?“+ En þeir þögðu. 5 Hann leit á þá sem voru í kringum hann, reiður og miður sín yfir kaldlyndi þeirra,+ og sagði við manninn: „Réttu fram höndina.“ Hann rétti fram höndina og hún varð heilbrigð. 6 Þá gengu farísearnir út og tóku þegar í stað að leggja á ráðin með fylgismönnum Heródesar+ um að drepa hann.

7 En Jesús hélt niður að vatninu með lærisveinum sínum og mikill mannfjöldi frá Galíleu og Júdeu fylgdi honum.+ 8 Þegar fólk heyrði um allt sem hann gerði flykktist það til hans, jafnvel frá Jerúsalem og Ídúmeu, frá svæðinu handan Jórdanar og nágrenni Týrusar og Sídonar. 9 Jesús sagði lærisveinunum að hafa lítinn bát til reiðu handa sér svo að mannfjöldinn þrengdi ekki að honum. 10 Þar sem hann læknaði marga þyrptust að honum allir sem voru haldnir alvarlegum sjúkdómum til að snerta hann.+ 11 Jafnvel þeir sem voru haldnir óhreinum öndum+ féllu fram fyrir honum þegar þeir sáu hann og hrópuðu: „Þú ert sonur Guðs!“+ 12 En hann harðbannaði þeim margsinnis að segja frá hver hann væri.+

13 Hann fór upp á fjall, kallaði saman þá sem hann hafði í huga+ og þeir komu til hans.+ 14 Hann valdi* 12 manna hóp og nefndi þá postula. Þeir áttu að fylgja honum og hann ætlaði að senda þá út til að boða fagnaðarboðskapinn 15 og gefa þeim vald til að reka út illa anda.+

16 Í þessum 12 manna hópi+ sem hann valdi* voru Símon, sem hann nefndi einnig Pétur,+ 17 Jakob Sebedeusson og Jóhannes bróðir Jakobs (hann nefndi þá einnig Boanerges sem þýðir ‚þrumusynir‘),+ 18 Andrés, Filippus, Bartólómeus, Matteus, Tómas, Jakob Alfeusson, Taddeus, Símon Kananeus* 19 og Júdas Ískaríot sem síðar sveik hann.

Síðan fór hann inn í hús 20 og mannfjöldinn þyrptist að á nýjan leik svo að þeir gátu ekki einu sinni fengið sér að borða. 21 En þegar ættingjar hans fréttu það fóru þeir til að sækja hann því að þeir sögðu: „Hann er genginn af vitinu.“+ 22 Og fræðimennirnir sem komu ofan frá Jerúsalem sögðu: „Beelsebúl* er í honum og hann rekur út illu andana með hjálp höfðingja illu andanna.“+ 23 Þess vegna kallaði Jesús þá til sín og talaði til þeirra í líkingum: „Hvernig getur Satan rekið Satan út? 24 Ef sundrung verður í ríki fær ríkið ekki staðist+ 25 og ef sundrung verður í fjölskyldu fær fjölskyldan ekki staðist. 26 Hið sama er að segja um Satan. Ef hann hefur snúist gegn sjálfum sér og er orðinn sundraður fær hann ekki staðist heldur er úti um hann. 27 Reyndar getur enginn sem fer inn í hús hjá sterkum manni stolið eigum hans nema hann bindi fyrst manninn. Þá fyrst getur hann rænt hús hans. 28 Trúið mér, mönnunum verður fyrirgefið allt, hvaða syndir sem þeir drýgja og hvernig sem þeir lastmæla. 29 En þeim sem lastmælir gegn heilögum anda verður aldrei fyrirgefið,+ hann er sekur um eilífa synd.“+ 30 Hann sagði þetta vegna þess að þeir sögðu: „Hann er haldinn óhreinum anda.“+

31 Nú komu móðir hans og bræður.+ Þau stóðu fyrir utan og sendu eftir honum.+ 32 Fjöldi fólks sat í kringum hann og honum var sagt: „Móðir þín og bræður eru fyrir utan og spyrja eftir þér.“+ 33 Hann svaraði: „Hver eru móðir mín og bræður?“ 34 Síðan leit hann á þá sem sátu í kringum hann og sagði: „Sjáið, hér eru móðir mín og bræður.+ 35 Hver sem gerir vilja Guðs, sá er bróðir minn og systir og móðir.“+

Íslensk rit (1985-2025)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila