LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU
Notum smárit til að hefja umræður
Frá janúar 2018 hafa verið tillögur að umræðum á forsíðu vinnubókarinnar Líf okkar og boðun. Við höfum verið hvött til að einbeita okkur að því að hefja umræður við fólk frekar en að bjóða bara rit. Til að hjálpa boðberum að aðlagast þessum breytingum höfum við fengið myndskeið með tillögum að umræðum sem sýna hvernig við getum notað Biblíuna til að hefja umræður. Þýðir þetta að við ættum ekki að bjóða rit þegar við boðum trúna hús úr húsi? Alls ekki. Smárit geta til dæmis verið áhrifarík leið til að hefja umræður. Við getum notað eftirfarandi aðferð þegar við notum eitt af smáritunum:
Spyrðu spurningarinnar á forsíðunni.
Sýndu svar Biblíunnar í biblíuversinu (versunum) efst á blaðsíðu tvö. Ef tíminn leyfir skaltu lesa og ræða um upplýsingarnar sem koma fram í smáritinu.
Gefðu húsráðandanum smáritið og hvettu hann til að lesa það þegar tækifæri gefst.
Áður en þú ferð skaltu sýna honum spurninguna „til umhugsunar“ og leggja til að ræða svar Biblíunnar næst þegar þú kemur.
Þegar þú kemur aftur skaltu ræða um svarið við spurningunni og varpa fram annarri spurningu til að taka fyrir næst þegar þú kemur. Þú gætir valið spurningu á vefsíðunni okkar eða í riti sem er vitnað í á baksíðunni. Þegar við á skaltu kynna bæklinginn Gleðifréttir frá Guði eða eitthvað annað námsrit í verkfærakistunni okkar.