Hvað getum við sagt um blöðin?
Varðturninn 1. júní
„Þegar ástvinur deyr er eðlilegt að langa til að sjá hann, aftur. Ertu ekki sammála? [Gefðu kost á svari.] Mörgum hefur þótt loforð Biblíunnar um upprisu hughreystandi. [Lestu Jóhannes 5:28, 29] Þetta tímarit fjallar um það hvenær upprisan muni eiga sér stað og hverjir njóti góðs af henni.“
Vaknið! apríl-júní
„Streita er eitt af stærstu vandamálunum sem fólk glímir við nú á tímum. Ertu ekki sammála? [Gefðu kost á svari.] Þetta var sagt nákvæmlega fyrir í Biblíunni. [Lestu 2. Tímóteusarbréf 3:1.] Þetta tímarit hefur að geyma raunhæfar leiðbeiningar sem geta hjálpað þér og fjölskyldu þinni að draga úr streitu.“
Kynning á Kröfubæklingnum
„Menn þurfa að takast á við margt í lífinu nú á tímum og því mætti spyrja hvort bænin geti komið okkur að raunverulegu gagni? [Gefðu kost á svari.] Margir segja að bænin veiti þeim innri styrk. [Lestu Filippíbréfið 4:6, 7.] Engu að síður getur þeim fundist að þeir fái ekki bænheyrslu. [OpnaðuKröfubæklinginn á kafla 7.] Þessi bæklingur útskýrir hvernig bænin getur gagnast okkur sem best.“