Hvað geturðu sagt um blöðin?
Varðturninn 1. febrúar
„Á undanförnum árum hefur áhugi á englum aukist. Hefurðu einhvern tíma velt fyrir þér hvað englar séu og hvort þeir hafi einhver áhrif á líf okkar? [Gefðu kost á svari. Lestu síðan Sálm 34:8.] Þetta blað fjallar um það sem Biblían segir um störf englanna í fortíðinni, nú á dögum og í framtíðinni.“
Vaknið! janúar-mars
„Veltirðu stundum fyrir þér hvernig heimurinn verði eftir 20 eða 30 ár? [Gefðu kost á svari. Lestu síðan Sálm 119:105.] Biblían varpar ljósi á veginn fram undan svo að við getum séð hvað bíður okkar í framtíðinni. Þetta tímarit fjallar um spádóma sem sýna hvar við erum stödd í tímans rás og hvers vegna við getum vænst bjartrar framtíðar.“
Vaknið! janúar-mars
„Margir halda að Biblían ýti undir kynjamisrétti. Heldur þú að Biblían mismuni körlum og konum? [Gefðu kost á svari. Lestu síðan Galatabréfið 3:28.] Í þessu blaði eru rakin nokkur dæmi sem sýna hvernig Biblían hefur alltaf staðið vörð um réttindi kvenna og einnig hve vel hún talar um konur.“