LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU
Lofaðu Jehóva sem brautryðjandi
Ísraelsmenn höfðu meiri háttar ástæðu til að lofa Jehóva. Hann hafði leitt þá út úr Egyptalandi og bjargað þeim frá her faraós. (2Mó 15:1, 2) Jehóva heldur áfram að sýna fólki sínu góðvild. Hvernig getum við sýnt þakklæti okkar? – Sl 116:12.
Ein leið er að gerast aðstoðarbrautryðjandi eða brautryðjandi. Þú getur beðið Jehóva um löngun og kraft til að gerast brautryðjandi. (Fil 2:13) Margir byrja fyrst sem aðstoðarbrautryðjendur. Þú getur valið um að nota 30 eða 50 klukkustundir í boðuninni í mars og apríl og þeim mánuðum sem farandhirðirinn heimsækir söfnuðinn. Eftir að hafa smakkað gleðina í boðuninni sem aðstoðarbrautryðjandi gæti þig langað til að auka starf þitt og gerast brautryðjandi. Sumir sem vinna fulla vinnu eða eru með heilsu sem setur þeim takmörk hafa jafnvel getað verið brautryðjendur. (mwb16.07 8) Jehóva á hvaðeina skilið sem við leggjum á okkur til að lofa hann. – 1Kr 16:25.
HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ ÞRJÁR SYSTUR Í MONGÓLÍU OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:
Hvaða hindranir yfirstigu systurnar þrjár til að gerast brautryðjendur?
Hvaða blessunar hafa þær notið?
Hvaða tækifæri í þjónustunni við Jehóva hafa opnast þeim í gegnum brautryðjendastarfið?
Hvaða áhrif hefur fordæmi þeirra haft á aðra?