Nám í bókinni Sameinuð í tilbeiðslu
Bókin Sameinuð í tilbeiðslu á hinum eina sanna Guði er vel til þess fallin að fara yfir með áhugasömum eftir að þeir hafa numið Þekkingarbókina. Með því að fara yfir hana í bóknáminu styrkjum við kærleikann og þakklætið til Jehóva og skipulags hans, og við verðum leiknari í að nota hana í boðunarstarfinu. Hvernig getum við haft sem mest gagn af náminu í bókinni Sameinuð í tilbeiðslu?
Umsjón með náminu: Þar sem við förum yfir heilan kafla í hverri viku þurfa bóknámsumsjónarmenn að nýta tímann vel. Þeir ættu ekki að staldra of lengi við upphafsgreinarnar heldur nota meiri tíma til að fara yfir aðalatriði efnisins sem er yfirleitt síðar í kaflanum. Stuttar umræður um upprifjunarspurningarnar í lok námsins hjálpa viðstöddum að leggja aðalatriðin á minnið.
Í flestum köflum bókarinnar eru smáletraðar spurningar í meginmálinu sem gott er að hugleiða og ræða um. Finna má dæmi um það á bls. 44-5. Ekki þarf að lesa þessar spurningar með efnisgreinunum. Þegar umsjónarmaðurinn fer yfir þær með hópnum ætti hann, ef tími leyfir, að láta lesa ritningarstaðina sem vísað er í og ræða um þá. Athygli er vakin á því að ekki verður farið yfir 14., 19. og 20. kafla.
Undirbúningur: Til þess að undirbúa sig vel fyrir námið þarf að gera meira en aðeins að strika undir svörin. Ef við hugleiðum ritningarstaðina vandlega undirbúum við ekki aðeins svörin heldur einnig hjartað. (Esra. 7:10, NW) Við getum öll verið öðrum til hvatningar með því að vera fús til að svara. — Rómv. 1:11, 12.
Þegar við förum yfir bókina Sameinuð í tilbeiðslu nálægum við okkur Jehóva og verðum færari í að hjálpa hjartahreinu fólki að sameinast okkur í að tilbiðja hann. (Sálm. 95:6; Jak. 4:8) Við skulum öll nýta okkur þessa ágætu andlegu ráðstöfun til fulls.